Við trúum á jarðefnaeldsneytislausa framtíð og réttláta og sjálfbæra umbreytingu yfir í
endurnýjanlega orkugjafa. Orkuskiptin eru komin vel á veg á Íslandi, en um leið umræðan
um að selja fjöreggið Landsvirkjun. Græningjar leggjast alfarið gegn sölu Landsvirkjunnar
sem á, eins og aðrir innviðir, að vera eign þjóðarinnar.
Við trúum því að sanngirni og samstaða séu grunngildi samfélags okkar og forsenda farsældar.
Við höfum brennandi áhuga á að byggja upp félagsleg kerfi og styðjum stefnur sem draga úr ójöfnuði,
útrýma fátækt og tryggja velferð allra.
Við þurfum félagslega byltingu.